30.4.2009 | 22:42
Líf og fjör á Melum í Trékyllisvík á Ströndum!


Badda og Björn (fædd 1956) hófu búskap á Melum I 1975 og hafa alið upp fimm börn og eiga þar að auki sex barnabörn sem koma hvenær sem færi gefst í sveitina í heimsókn til afa og ömmu.
Þrjú börn eru uppkomin en eftir eru tvær heimasætur á bænum (18 og 19 ára). Hjónin eru sauðfjárbændur með rúmlega 400 ær á fóðrun og einn hund. Á sumrin eru kindurnar flestar á fjalli en hvert sumar eru nokkrir heimalningar sem fá mjólk úr pela.
Ýmislegt er gert með börnunum og verður næg útivist í boði. Farið verður í gönguferðir, fjöruferðir og í sund. Gefa heimalningum og ærslast í heyinu. Nóg pláss er fyrir ýmsa leiki utandyra sem innan, boltaleiki og feluleiki. Svo verður ábyggilega bakað ofan í mannskapinn.

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.