5.6.2010 | 21:17
MARS
Veðrið lofaði góðu, allavega fyrst um sinn. Saumaklúbburinn á Melum var haldinn og í hann mættu tvær stöllur, María (fluga á vegg) og Vigdís Grímsdóttir rithöfundur sem las upp fyrir okkur. það gerði stormandi lukku. Þá var kosið og fé klippt, sprautað, og fóstur talin. Stofnaður var trimmhópur Trékyllisvíkur og trimmað er þrisvar í viku. Fyrsta pöntunin fyrir sumarið kom frá Hornstrandaförum og hlökkum við mikið til.Bændur skelltu sér á Sögu á Árshátíð Árneshreppsbúa sem var mjög skemmtilegt. Loks kom hið langþráða páskafrí og heimasæturnar komu heim í búskapinn. Þá var líka spilað, borðað, slappað af, trimmað og farið á milli bæja (gestast). Samgöngur hafa verið nokkuð góðar vegna þess að vetur konungur hefur farið mjúkum höndum um okkur. Þetta dregur mikið úr einangruninni og gert sveitungunum kleift að vera á faraldsfæti í allan vetur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.